Fara í efni

Glæsilegt Polo kvöld á vegum HEKLU og femin.is

HEKLA og femin.is stóðu fyrir glæsilegu Polo kvöldi í gærkvöldi í húsakynnum HEKLU. Á milli 500 og 600 konur mættu á svæðið og áttu notalega kvöldstund. Svavar Örn var kynnir kvöldsins og félagarnir Gullfoss og Geysir töfruðu fram tónlist, sem myndaði skemmtilega stemmningu. Hafliði bauð upp á ómótstæðilegt konfekt, Vífilfell m.a. upp á Coke, diet Coke og Topp og Nings kynnti veisluþjónustu sína og bauð upp á ljúffengt sushi og fleira góðgæti.HEKLA og femin.is stóðu fyrir glæsilegu Polo kvöldi í gærkvöldi í húsakynnum HEKLU. Á milli 500 og 600 konur mættu á svæðið og áttu notalega kvöldstund. Svavar Örn var kynnir kvöldsins og félagarnir Gullfoss og Geysir töfruðu fram tónlist, sem myndaði skemmtilega stemmningu. Hafliði bauð upp á ómótstæðilegt konfekt, Vífilfell m.a. upp á Coke, diet Coke og Topp og Nings kynnti veisluþjónustu sína og bauð upp á ljúffengt sushi og fleira góðgæti.HEKLA og femin.is stóðu fyrir glæsilegu Polo kvöldi í gærkvöldi í húsakynnum HEKLU. Á milli 500 og 600 konur mættu á svæðið og áttu notalega kvöldstund. Svavar Örn var kynnir kvöldsins og félagarnir Gullfoss og Geysir töfruðu fram tónlist, sem myndaði skemmtilega stemmningu. Hafliði bauð upp á ómótstæðilegt konfekt, Vífilfell m.a. upp á Coke, diet Coke og Topp og Nings kynnti veisluþjónustu sína og bauð upp á ljúffengt sushi og fleira góðgæti. Alls höfðu um 250 konur reynsluekið Polo áður en kvöldið rann upp og ríflega 100 konur bættust í hópinn áður en yfir lauk. Jói og félagar stóðu fyrir glæsilegri hárgreiðslusýningu og tískusýningu frá Spútnik, Júníform og Glamúr. Auk þess voru ýmsar kynningar í boði og fjöldi tilboða, m.a. 50.000 króna afsláttur af General Electric ísskáp frá Electric Raftækjaverslun HEKLU.

Fjöldi happdrættisvinninga var í boði. Tveir 6 manna hópar fengu miða á Hárið, tveir 8 manna hópar fengu vikukort í Laugum, tvær árskort.

Þá var komið að lokavinningnum, 5 daga ferð á söguslóðir Sex in the City í New York í boði Icelandair ásamt gistingu. Eins og myndin hér að neðan ber með sér var gleði sigurvegarns, Helgu A. Lúðvíksdóttur, ósvikin, enda verður þetta hennar fyrsta ferð út fyrir landsteinana.

Að lokum var þessi föngulegi hópur leystur út með gjafakassa með ýmiskonar tilboðum, gjafamiðum og sýnishornum.

Kvöldið var í alla staði afar vel heppnað og hafa margar konur haft samband við HEKLU í dag og látið í ljós ánægju með hvernig til tókst. HEKLA þakkar þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem tóku þátt í undirbúningi kvöldsins.