Fara í efni

HEKLA hefur innflutning á Mitsubishi Canter vinnubílum.

Vélasvið HEKLU hefur hafið innflutning á Mitsubishi Canter vinnubílum. Vélasvið HEKLU hefur hafið innflutning á Mitsubishi Canter vinnubílum. Vélasvið HEKLU hefur hafið innflutning á Mitsubishi Canter vinnubílum. Bílarnir eru gerðir fyrir heildarþyngd frá 3,5 tonnum til 7,5 tonn og verða fáanlegir í nokkrum mismunandi, útfærslum svo sem með vörukassa, föstum palli og einnig með sturtupalli. Canter er fáanlegur 3-7 manna með einföldu eða tvöföldu farþegahúsi.

Mitsubishi Canter hefur haft á sér gott orð fyrir áreiðanleika og hagkvæmni í rekstri en HEKLA hefur undanfarin ár getað boðið þessa bíla og eru þónokkrir bílar í umferð hér á landi. Nú er hins vegar í fyrsta skipti boðið upp á tilbúna bíla með ábyggingu beint frá framleiðanda og er afgreiðslufrestur á bílnum aðeins 6 vikur.

Fyrstu bílarnir eru komnir til landsins og voru frumsýndir í dag hjá vélasviði HEKLU í Klettagörðum 8-10 á opnu húsi.