Fara í efni

Heklumót Víðis í knattspyrnu

Heklumót Víðis í knattspyrnu fór fram sl. sunnudag í frábæru veðri á Víðisvelli í Garði. Mótið var fyrir krakka í 6. flokki og mátti sjá frábær tilþrif hjá þessum ungu og efnilegu fótboltamönnum. Spilað var í A, B, og C-liðum en fimm lið af Suðurnesjum voru skráð til leiksHeklumót Víðis í knattspyrnu fór fram sl. sunnudag í frábæru veðri á Víðisvelli í Garði. Mótið var fyrir krakka í 6. flokki og mátti sjá frábær tilþrif hjá þessum ungu og efnilegu fótboltamönnum. Spilað var í A, B, og C-liðum en fimm lið af Suðurnesjum voru skráð til leiksHeklumót Víðis í knattspyrnu fór fram sl. sunnudag í frábæru veðri á Víðisvelli í Garði. Mótið var fyrir krakka í 6. flokki og mátti sjá frábær tilþrif hjá þessum ungu og efnilegu fótboltamönnum. Spilað var í A, B, og C-liðum en fimm lið af Suðurnesjum voru skráð til leiks Víðir, Reynir, Keflavík, Njarðvík og Grindavík. Njarðvíkingar voru mjög sigursælir á mótinu og sigruðu í flokki A og B-liða en í flokki C-liða sigraði Reynir.

Leikið var á þremur völlum og þótti mótið takast mjög vel. Öll lið fengu verðlaunapening og
lítinn bakpoka að mótinu loknu en að verðlaunaafhendingu lokinni var krökkunum boðið upp á
pylsur og kók. Styrktaraðili mótsins var Hekla og gáfu þeir verðlaunin og buðu í grillveisluna.

Heimild: Víkurfréttir.