Karfan er tóm.
Höldur-Bílaleiga Akureyrar fær 300 nýja bíla
21. júní. 2006
Höldur-Bílaleiga Akureyrar fékk á dögunum afhenta yfir 300 bíla frá HEKLU af gerðunum Volkswagen, Skoda og Mitsubishi. Höldur-Bílaleiga Akureyrar fékk á dögunum afhenta yfir 300 bíla frá HEKLU af gerðunum Volkswagen, Skoda og Mitsubishi. Höldur-Bílaleiga Akureyrar fékk á dögunum afhenta yfir 300 bíla frá HEKLU af gerðunum Volkswagen, Skoda og Mitsubishi.
Það er útlit fyrir að heildarmarkaður bílaleigu fari heldur vaxandi í sumar en síðasta ár var eitt stærsta ferðamannaár í sögunni. Við erum því að fjölga bílum nokkuð á milli ára en bílarnir frá HEKLU hafa komið afar vel út og viðskiptavinir verið ánægðir með þá, segir Steingrímur Birgisson framkvæmdastjóri Hölds-Bílaleigu Akureyrar. Jafnframt því að auka við úrvalið, þá erum þeir að taka inn töluvert af 4x4 TDI dísilknúnum Skoda Octavia skutbílum, segir Steingrímur. Einnig erum við nú í fyrsta sinn að taka inn lúxusjeppa frá HEKLU og verðum meðal annars með Volkswagen Touareg jeppa.
Við hjá HEKLU höfum átt afar góð og vaxandi viðskipti við Höld-Bílaleigu Akureyrar í gegnum árin. Allt viðhald og eftirlit hjá þeim er til mikils sóma sem þýðir að í endursölu eru þessir bílar eftirsóttir, segir Marinó B. Björnsson, sölustjóri bílasviðs Heklu.
Á myndinni hér að ofan tekur Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri Hölds-Bílaleigu Akureyrar (tv), við einum af bílunum 300 af Marinó B. Björnssyni, sölustjóra bílasviðs HEKLU.