Fara í efni

Mika Salo ekur fyrir Audi Sport UK liðið

Finnski ökumaðurinn Mika Salo var við æfingar á Audi R8 í Snetterton á Englandi sl. mánudag. Salo, sem keppti í formúlu 1 á síðasta ári mun keppa fyrir Audi á þessu ári.Finnski ökumaðurinn Mika Salo var við æfingar á Audi R8 í Snetterton á Englandi sl. mánudag. Salo, sem keppti í formúlu 1 á síðasta ári mun keppa fyrir Audi á þessu ári.Finnski ökumaðurinn Mika Salo var við æfingar á Audi R8 í Snetterton á Englandi sl. mánudag. Salo, sem keppti í formúlu 1 á síðasta ári mun keppa fyrir Audi á þessu ári. Salo mun taka þátt í 12 stunda kappakstri í Sebring 15. mars nk. og Le Mans kappakstrinum sem verður síðar á árinu. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður, kulda og raka var Salo ánægður með bílinn. "Ég er mjög hrifinn af bílnum, svona við fyrstu sín og virkar bíllinn mjög vel", sagði Mika Salo.

Alls munu þrír Audi R8 keppnisbílar taka þátt í ALMS mótaröðinni. Jonny Kane og Perry McCarthy eru með Mika Salo í Audi Sport UK liðinu, JJ Lehto, Stefan Johansson og Emanuele Pirro keyra fyrir ADT Champion Racing liðið og Frank Biela, Philipp Peter og Marco Werner keyra fyrir Audi Infineon liðið sem sigraði í mótaröðinni á síðasta keppnistímabili.