Karfan er tóm.
Nýr Audi A8 lúxusfólksbíll frumsýndur í París
28. september. 2002
Audi frumsýnir á bílasýningunni í París nýjan Audi A8 lúxusfólksbíll. Nýr Audi A8 er álbíll og er Quattro aldrif staðalbúnaður í öllum gerðum. Þetta nýja flaggskip Audi kemur á markað á fyrsta ársfjórðungi ársins 2003 og verður búinn aflmiklum V8 vélum.Audi frumsýnir á bílasýningunni í París nýjan Audi A8 lúxusfólksbíll. Nýr Audi A8 er álbíll og er Quattro aldrif staðalbúnaður í öllum gerðum. Þetta nýja flaggskip Audi kemur á markað á fyrsta ársfjórðungi ársins 2003 og verður búinn aflmiklum V8 vélum.Audi frumsýnir á bílasýningunni í París nýjan Audi A8 lúxusfólksbíll. Nýr Audi A8 er álbíll og er Quattro aldrif staðalbúnaður í öllum gerðum. Þetta nýja flaggskip Audi kemur á markað á fyrsta ársfjórðungi ársins 2003 og verður búinn aflmiklum V8 vélum.
3,7 lítra bensínvélin mun gefa 380 hestöfl, 20 hestöflum meira en vél með sama rúmtaki í dag gefur. Nýja vélin skilar hröðun úr 0 í 100 á 6,3 sekúndum. 4,2 lítra vélin sem er 335 hestöfl lýkur sprettinum einnig á 6,3 sekúndum, sem er 0,6 sekúndum minna en 4,2 lítra, 310 hestafla vélin sem er í boði í dag.
Báðar gerðir munu verða með nýrri sex þrepa sjálfskiptingu, sem er með handvirkri Tiptronic skiptingu, sem ýmist er hægt að stýra með gírstöng eða hnöppum í stýrishjóli. Stillanleg loftfjöðrun með höggdeyfum sem aðlaga sig stöðugt að akstursaðstæðum er einnig staðalbúnaður, en hún gefur ökumanni val á þremur stillingum í akstri.
Stillanleg skriðstilling heldur jöfnu bili frá næstu bílum í umferðinni og með nýjum Multi Media búnaði í mælaborði er tökkum og stjórntækjum fækkað.
Audi segir að A8 verði í boði með V6 bensínvél fyrir árslok 2003.