Karfan er tóm.
Nýr Mitsubishi Outlander í borgarævintýrum
23. apríl. 2003
Mitsubishi Motors Europe hefur um miðjan maí nýja auglýsingaherferð til að kynna nýjan jeppling frá Mitsubishi, sem hlotið hefur nafnið Outlander. Auglýsingaherferðin verður tilbreyting frá hefðbundnum auglýsingum. Henni er ætlað að undirstrika, að þessi nýi bíll Mitsubishi, sem brúar bilið á milli hefðbundinna fólksbíla og jeppa, sé fullkomið móteitur gagnvart þeim leiðindum sem mörgum finnst vera við akstur inn og út úr borgum. Mitsubishi Motors Europe hefur um miðjan maí nýja auglýsingaherferð til að kynna nýjan jeppling frá Mitsubishi, sem hlotið hefur nafnið Outlander. Auglýsingaherferðin verður tilbreyting frá hefðbundnum auglýsingum. Henni er ætlað að undirstrika, að þessi nýi bíll Mitsubishi, sem brúar bilið á milli hefðbundinna fólksbíla og jeppa, sé fullkomið móteitur gagnvart þeim leiðindum sem mörgum finnst vera við akstur inn og út úr borgum. Mitsubishi Motors Europe hefur um miðjan maí nýja auglýsingaherferð til að kynna nýjan jeppling frá Mitsubishi, sem hlotið hefur nafnið Outlander. Auglýsingaherferðin verður tilbreyting frá hefðbundnum auglýsingum. Henni er ætlað að undirstrika, að þessi nýi bíll Mitsubishi, sem brúar bilið á milli hefðbundinna fólksbíla og jeppa, sé fullkomið móteitur gagnvart þeim leiðindum sem mörgum finnst vera við akstur inn og út úr borgum.
Nýja auglýsingaherferðin er hönnuð af StrawberryFrog, alþjóðlegu auglýsingafyrirtæki sem hefur aðsetur í Amsterdam og verður leiðandi í nýrri ímyndarherferð MME. Herferðinni verður einkum beint að íbúum úthverfa evrópskra borga, sérstaklega þeim sem áhuga hafa á ævintýrum. Notast verður við sjónvarp, prentað mál, umhverfisauglýsingar og netið til að koma því til skila að Outlander er afar meðfærilegur bíll, og þrífst ekki síður á steinlögðum strætum en í óbyggðum. Önnur skilaboð herferðarinnar eru hönnun og stíll, og ekki síður létt áhersla á líf úthverfanna. Herferðin leggur einnig áherslu á íþróttir nútímans og tísku, öfugt við flestar hefðbundnar bílaauglýsingar.
Nýja herferðin mun í prentuðu máli og á plakötum koma því til skila að ökuferð í Outlander geri borgaraksturinn að ævintýri. Nýju auglýsingarnar voru allar teknar í Suður-Afríku. Herferðin sýnir hvernig Outlander hefur áhrif á daglegt líf ökumanna á milli borgarhluta, við aksturinn í skólann, til skrifstofunnar, að sækja föt í hreinsunina, eða á leið í stórmarkaðinn.
Nýja herferðin mun í prentuðu máli og á plakötum koma því til skila að ökuferð í Outlander geri borgaraksturinn að ævintýri. Nýju auglýsingarnar voru allar teknar í Suður-Afríku. Herferðin sýnir hvernig Outlander hefur áhrif á daglegt líf ökumanna á milli borgarhluta, við aksturinn í skólann, til skrifstofunnar, að sækja föt í hreinsunina, eða á leið í stórmarkaðinn.