Fara í efni

SKODA opnar nýjan sýningarsal

Í dag, laugardaginn 19. ágúst, kl. 11-16, opnar HEKLA nýjan og glæsilegan SKODA sýningarsal að Laugavegi 172. Í dag, laugardaginn 19. ágúst, kl. 11-16, opnar HEKLA nýjan og glæsilegan SKODA sýningarsal að Laugavegi 172. Í dag, laugardaginn 19. ágúst, kl. 11-16, opnar HEKLA nýjan og glæsilegan SKODA sýningarsal að Laugavegi 172. Til að mæta aukinni eftirspurn íslenskra bifreiðaeigenda eftir hinum vinsælu og hagkvæmu SKODA bílum opnar HEKLA nýjan og glæsilegan sýningarsal fyrir SKODA að Laugavegi 172 á morgun, laugardaginn 19. ágúst.

Í tilefni opnunar verður frumsýndur nýr og glæsilegur SKODA ROOMSTER, sem var sérstaklega fluttur til landsins vegna opnunarinnar. SKODA ROOMSTER er fimm dyra lipur og sparneytinn fólksbíll með sérlega gott innra rými. Einnig verður ofurbíllinn SKODA Octavia RS, kynntur til sögunnar en hann státar af 200 hestafla vél.

Opnunartilboð verða á takmörkuðum fjölda Skoda Octavia 2,0 FSI (6 stk.), Octavia Combi (4 stk.) og Fabio Terno (10 stk.). Tilboðin gilda aðeins í dag.

Allir bílar frá SKODA fást með TDI® dísilhreyfli sem er afar sparneytinn á eldsneyti við öll akstursskilyrði, enda teljast TDI® dísilhreyflar með þeim bestu sem framleiddir eru í dag.

Bílaáhugamenn og aðrir eru hvattir til að taka forskot á menningarnótt og líta við í nýja SKODA salnum. Boðið verður upp á léttar veitingar, grillaðar pylsur, gos og íspinna og börnin fá gefins blöðrur.

Allir hjartanlega velkomnir!