Fara í efni

Touran landsleikurinn. Ferð fyrir sjö á Þýskaland - Ísland

Í tilefni landsleiks Íslands og Þýskalands efndu HEKLA, Icelandair, og KSÍ til „Touran landsleiksins“. Þessi skemmtilegi leikur fór fram í tengslum við kynningu HEKLU á Volkswagen Touran, nýjum 7 manna bíl frá Volkswagen. Í tilefni landsleiks Íslands og Þýskalands efndu HEKLA, Icelandair, og KSÍ til „Touran landsleiksins“. Þessi skemmtilegi leikur fór fram í tengslum við kynningu HEKLU á Volkswagen Touran, nýjum 7 manna bíl frá Volkswagen. Í tilefni landsleiks Íslands og Þýskalands efndu HEKLA, Icelandair, og KSÍ til „Touran landsleiksins“. Þessi skemmtilegi leikur fór fram í tengslum við kynningu HEKLU á Volkswagen Touran, nýjum 7 manna bíl frá Volkswagen. Með reynsluakstri á Volkswagen Touran gafst þátttakendum kostur á að setja nafn sitt í pott sem dregið var úr 6. september á heimaleik Íslands og Þýskalands. Þar sem Touran er sjö manna bíll hlaut vinningshafinn ferð fyrir sjö manns til Þýskalands á lokaleik Íslands í undankeppni EM, miða á leikinn og gistingu fyrir hópinn.

Auk þessa hefur nú verið gefið út glæsilegt plakat með mynd af landsliðsmönnum Íslands og hinum nýja Volkswagen Touran og geta allir sem koma í heimsókn til HEKLU eða í næsta söluumboð HEKLU fengið plakatið. Myndin á plakatinu var tekin á æfingu landsliðsins á Selfossi nú í sumar.

Volkswagen Touran var fyrst kynntur á bílasýningunni í Genf núna í vor. Touran er hlaðinn öryggis- og þægindabúnaði, þar á meðal sex öryggisloftpúðum, virkum öryggishöfuðpúðum á framsætum, ESP stöðugleikabúnaði, hemlahjálp og útvarpi með geislaspilara. Touran kemur á markað hér á landi með nýrri FSI vél og sex gíra gírkassa, sem þykir einstætt í þessum stærðarflokki. FSI vélina er einnig mögulegt að fá með nýrri sex þrepa sjálfskiptingu og verður sá búnaður í boði á miðju sumri.

Búið er að draga í leiknum og heitir sá heppni Ingvar Steinar Vilbergsson.