Fara í efni

Volkswagen Caddy - stærri og meiri bíll með 3,2 rúmmetra flutningsrými

Volkswagen Caddy er kominn aftur. Caddý er núna kominn með hleðsluhurðir báðum megin og tvöfalda afturhurð. Bíllinn er afar vel búinn, hefur aukið flutningsrými sem nemur 300 lítrum, miðað við eldri gerð og er heildarflutningsrými bílsins 3,2 rúmmetrar. Staðalbúnaður í Volkswagen Caddy er meðal annars ABS hemlalæsivörn með hjálparafli, ASR spólvörn, geislaspilari með útvarpi, rafdrifnar rúðuvindur, fjarstýrðar samlæsingar, hæðarstillingu á bílstjórasæti svo eitthvað sé nefnt. Hægt er að fá Caddy með 1400cc 16 ventla bensínhreyfli og einnig með 2000cc dísilhreyfli síðar í sumar. Caddy kostar aðeins krónur 1.590.000 m/vsk. og er hægt að fá hann í rekstrarleigu.