Fara í efni

Volkswagen hlýtur verðlaun á alþjóðlegri vörusýningu

Framúrskarandi þjónustunet Phaeton verðlaunað Volkswagen hlaut fimm verðlaun fyrir nýjungar á Automechanika vörusýningunni í Frankfurt í Þýskalandi, sem er stærsta sýning í heimi varðandi búnað og þjónustu fyrir bílaiðnaðinn.Framúrskarandi þjónustunet Phaeton verðlaunað Volkswagen hlaut fimm verðlaun fyrir nýjungar á Automechanika vörusýningunni í Frankfurt í Þýskalandi, sem er stærsta sýning í heimi varðandi búnað og þjónustu fyrir bílaiðnaðinn.Framúrskarandi þjónustunet Phaeton verðlaunað Volkswagen hlaut fimm verðlaun fyrir nýjungar á Automechanika vörusýningunni í Frankfurt í Þýskalandi, sem er stærsta sýning í heimi varðandi búnað og þjónustu fyrir bílaiðnaðinn. Nýja Tækniþjónustumiðstöðin í Wolfsburg, sem heldur utan um alla þjónustu fyrir nýja lúxusfólksbílinn Phaeton, og mun sinna sama hlutverki fyrir aðrar gerðir í framtíðinni, fékk verðlaun í flokki nýjunga vegna framúrskarandi þjónustu á landsvísu í bílaiðnaðinum.

“Fjöldi verðlauna sem Volkswagen hlýtur á sviði þjónustu undirstrika nýjungar og brautryðjendahlutverk þeirra varðandi samband við viðskiptavini, sem við ásamt umboðsmönnum okkar höfum langa reynslu af á þessu sviði”, segir Schüttemeyer, stjórnandi þjónustumála Volkswagen í Evrópu.

Í heild var Volkswagen í fararbroddi bílaframleiðenda á Automechanika, hvað varðar þróun framtíðarþjónustutækni. Í fjórða sinn í röð fékk Volkswagen sem er leiðandi bílaframleiðandi í Evrópu verðlaun í ýmsum flokkum. Fyrir utan verðlaun fyrir nýju þjónustumiðstöðina fékk iTV tvívirka upplýsinga og kennslurásin verðlaun ársins í flokknum “auto-business” ásamt því að fá aðal nýjungaverðlaunin. Hugbúnaður vegna nýs reiknilíkans VW, xTime, fyrir áætlanagerð fyrir verkstæði, sem sýnt hefur meiri nákvæmni varðandi ófyrirséð atvik en áður hefur sést, fékk verðlaun í flokknum “auto-repair, eða bílaviðgerðum. Loks varð Volkswagen sigurvegari í flokki sem snýr að umhverfisvernd fyrir nýjan útblástursmæli, VAS 6300.