Fara í efni

27.78% söluaukning á Skoda

HEKLA hefur nú 22.91% markaðshlutdeild í sölu á nýjum bifreiðum að loknum 6 fyrstu mánuðum ársins. Heildarsamdráttur HEKLU milli ára nemur 3,47% og er sá minnsti á bílamarkaðinum ef bornar eru saman sölutölur 8 stærstu bílaumboða landsins. HEKLA hefur nú 22.91% markaðshlutdeild í sölu á nýjum bifreiðum að loknum 6 fyrstu mánuðum ársins. Heildarsamdráttur HEKLU milli ára nemur 3,47% og er sá minnsti á bílamarkaðinum ef bornar eru saman sölutölur 8 stærstu bílaumboða landsins. HEKLA hefur nú 22.91% markaðshlutdeild í sölu á nýjum bifreiðum að loknum 6 fyrstu mánuðum ársins. Heildarsamdráttur HEKLU milli ára nemur 3,47% og er sá minnsti á bílamarkaðinum ef bornar eru saman sölutölur 8 stærstu bílaumboða landsins. Söluaukning HEKLU á Skoda nemur 27.78% og ljóst er að Skoda hefur náð mjög góðri fótfestu á íslenska bílamarkaðinum og bera ánægðir viðskiptamenn þess glöggt vitni. Markaðshlutdeild Volkswagen stendur nánast í stað og er Volkswagen næstsöluhæsta tegundin eins og undanfarin ár. Heldur dregur saman í sölu á Mitsubishi, enda nánast eingöngu Mitsubishi jeppar í boði þessa stundina. Einnig hefur Sala á Audi heldur dregist saman en þó er Audi enn með góða hlutdeild í lúxusbílaflokki og er þar helst að telja Audi A4 sem hefur átt velgengni að fagna.


Nýskráðar bifreiðar fyrstu 6 mánuði ársins voru 3.763 talsins en voru 4.507 á sama tíma í fyrra. Samdrátturinn á markaðnum er því 16.51%. Sem fyrr er Toyota langsöluhæsta bifreiðin á markaðnum en fyrstu 6 mánuðina voru 1079 bifreiðar nýskráðar. Volkswagen er næstsöluhæsta bifreiðin með 442 nýskráningar á árinu. Nissan er í 3. sæti en 255 bifreiðar voru nýskráðar fyrstu 6 mánuði ársins.

Söluhæstu bifreiðarnar fyrstu 6 mánuði ársins (breyting frá árinu 2001):

1. Toyota 1079 (-5.60%)
2. Volkswagen 442 (-0.67%)
3. Nissan 255 (-34.11%)
4. Hyundai 212 (+7.39%)
5. Skoda 207 (+27.78%)
6. Opel 204 (-35.24%)
7. Subaru 194 (-23.92%)
8. Mitsubishi 177 (-22.37%)
9. SUZUKI 138 (-5.48%)
10. Ford 117 (-21.48%)
11. Peugeot 116 (+7.41%)

Söluhæstu umboðin fyrstu 6 mánuði ársins (breyting frá árinu 2001):

1. P.Samúelsson 1124 (-4.91%)
2. HEKLA 862 (-3.47%)
3. Ingvar Helgason 449 (-30.06%)
4. B & L 360 (-18.00%)
5. Bílheimar 231 (-34.00%)
6. Brimborg 214 (-18.94%)
7. G.Bernhard 172 (-18.10%)
8. Suzuki bílar 138 (-5.48%)