Karfan er tóm.
Bílavor 2010 - Í HEKLU
Bílavor 2010 – opið hús í bílaumboðunum á laugardag
Í samvinnu við Bílgreinasambandið mun HEKLA ásamt flestum bílaumboðum landsins blása til átaks á næstu mánuðum sem miðar að því að auka jákvæða umræðu um bílamarkaðinn. Hápunktar átaksins verða þrír laugardagar fram í maí, einn í hverjum mánuði. Sá fyrsti verður nk. laugardag, 20. mars, og þá verða bílaumboðin með opið hús. Þema dagsins er umhverfismál og sú mikla breyting sem orðið hefur í eldsneytiseyðslu og útblæstri bíla síðustu tíu ár.
Hjá HEKLU verður meðal annars hægt að reynsluaka nýjum Volkswagen Passt EcoFuel en metan er í dag um 50% ódýrara eldsneyti en hefðbundið jarðefnaeldsneyti. Að auki eru metanbílar undanþegnir vörugjöldum og því mjög hagkvæmur kostur þegar kemur að bílakaupum. Hægt er að fá metanbíla frá Volkswagen í ýmsum útfærslum, Passat, Passat Variant, Touran, Caddy, Caddy Life og Caddy Maxi.