Fara í efni

DAKAR, leið 2, 4. janúar 2009, úrslit.

Nú er tveimur aksturleiðum lokið í Dakarrallinu og eftir mikla baráttu efstu liða trjónir Carlos Sainz á Volkswagen á toppnum, en lið Giniel de Villiers, einnig á Volkswagen, er í öðru sæti. Í þriðja sæti er svo Stéphane Peterhansel á Mitsubishi Lancer aðeins tæpum 4 mínútum eftir efsta sætinu.Nú er tveimur aksturleiðum lokið í Dakarrallinu og eftir mikla baráttu efstu liða trjónir Carlos Sainz á Volkswagen á toppnum, en lið Giniel de Villiers, einnig á Volkswagen, er í öðru sæti. Í þriðja sæti er svo Stéphane Peterhansel á Mitsubishi Lancer aðeins tæpum 4 mínútum eftir efsta sætinu.Nú er tveimur aksturleiðum lokið í Dakarrallinu og eftir mikla baráttu efstu liða trjónir Carlos Sainz á Volkswagen á toppnum, en lið Giniel de Villiers, einnig á Volkswagen, er í öðru sæti. Í þriðja sæti er svo Stéphane Peterhansel á Mitsubishi Lancer aðeins tæpum 4 mínútum eftir efsta sætinu.

 

Eins og gefur að skila ríkir mikil spenna í herbúðum Volkswagen og eru menn að vonum bjartsýnir á að Volkswagen eygi sinn fyrsta sigur í Dakarrallinu.

 

Mitsubishi varð fyrir áfalli í gær á leið tvö en þá heltist Hiroshi Masuoka úr lestinni eftir að bilun kom upp í vél bílsins. Bilunin varð þess valdandi að ekki gafst nægur tími til viðgerða og var ökuþórinn því sjálfkrafa dæmdur úr leik. Þrátt fyrir þetta áfall eru liðsmenn Mitsubishi bjartsýnir á framhaldið og ákveðnir í að halda ótrauðir áfram til sigurs, enda hér á ferðinni sigursælasta liðið í Dakarrallinu frá upphafi.

 

Þegar 2. aksursleið er lokið er staðan svona:

 Sæti  Nr. Nafn  Framleiðandi  Tími  Munur 
 1  301  SAINZ (ESP) /  PERIN (FRA)  VOLKSWAGEN  04:34:46  00:00:00
 2  305  DE VILLIERS (ZAF) / VON ZITZEWITZ (DEU)  VOLKSWAGEN  04:37:05  00:02:19
 3  300  PETERHANSEL (FRA) /  COTTRET (FRA)  MITSUBISHI  04:38:37  00:03:51
 4  302  AL ATTIYAH (QAT) / HORNER (SWE)  BMW  04:39:01  00:04:15
 5  304  ROMA (ESP) / CRUZ SENRA (ESP)  MITSUBISHI  04:40:28  00:05:42
 6  303  ALPHAND (FRA) / PICARD (FRA)  MITSUBISHI  04:41:07  00:06:21
 7  308  MILLER (USA) / PITCHFORD (ZAF)  VOLKSWAGEN  04:43:06  00:08:20

 

Við mælum með eftirfarandi síðum þar sem hægt verður að fylgjast með framvindu mála:

www.volkswagen-motorsport.com

www.mitsubishi-dakar.com

www.dakar.com.