Karfan er tóm.
Hekla leiðandi í sjálfbærri orkunýtingu - 1000 bíla vistvæni múrinn rofinn!
Hekla náði nú á dögunum skemmtilegum tímamótum þegar 1.000 bíla múrinn var rofinn en aldrei fyrr hafa jafn margir vistvænir bílar frá Heklu selst á jafn skömmum tíma. Hekla er sem fyrr í fararbroddi á þessu sviði en 60% allra vistvænna bíla sem selst hafa á árinu koma frá Heklu.
Það sem af er árs hafa selst 381 Mitsubishi Outlander PHEV hjá Heklu. Þetta þýðir að rúmlega einn af hverjum fimm vistvænu bílum sem seldust á árinu er Outlander PHEV og hann er langvinsælasti vistvæni bílinn á Íslandi annað árið í röð. Þar á eftir kemur Volkswagen Golf en Hekla hefur selt 208 vistvæna Golf á árinu.
Ellefu mismunandi tegundir frá Heklu seldust af vistvænum bílum sem enn sannar yfirburði sína sem það bílaumboð sem býður ekki bara upp á vinsælustu tegundirnar heldur einnig upp á flestar tegundir vistvænna bíla. Óhætt er að segja að Hekla sé leiðandi í innleiðingu á sjálfbærri orkunýtingu bílaflotans á Íslandi.
Við erum mjög stolt af góðu gengi í sölu vistvænna bíla. Við leggjum mikinn metnað í þennan vöruflokk og raf-, metan- og tengiltvinnbílar fást í meira úrvali hjá Heklu en nokkru öðru umboði, segir María Jóna Magnúsdóttir framkvæmdastjóri sölusviðs Heklu. Það er frábært að hafa selt þúsund vistvæna bíla á árinu og við stefnum á að gera enn betur á næsta ári.