Karfan er tóm.
Golf dagurinn
Volkswagen fagnar sumrinu og býður nú gestum og gangandi á Golf daginn laugardaginn 24. maí. Þá ætlar Volkswagen að sýna nýjustu línuna af Golf bifreiðum, bjóða upp á léttar veitingar og snúning í veltibílnum.
Volkswagen hefur fengið í hús sérútbúna Golf bíla hlaðna aukabúnaði sem verða til sýnis ásamt Golf GTI og Golf R en þess má geta að sá síðastnefndi er hraðskreiðasti Golf sem framleiddur hefur verið hann er fjórhjóladrifinn 300 hestafla tryllitæki.
Gestum verður boðið uppá kex og kaffibolla frá Kaffitári sem þeir geta notið á meðan rölt er á milli sýningarbíla. Volkswagen hvetur fólk til að koma við í reynsluakstur og prófa hinn margverðlaunaða Golf og fá tilfinningu fyrir bílnum og þeim þægindum sem Golf hefur uppá að bjóða.
Yngri kynslóðinni verður boðið upp á ferð í veltibílnum sívinsæla, safa til að kæla sig niður og þeim yngstu blöðru til að taka með heim.
Þrír heppnir sem koma við og skrá sig í lukkupottinn fá fría olíuskiptingu hjá Smurþjónustu Heklu!
HEKLA, Laugavegi 170-174, er opin á laugardaginn milli klukkan 12 og 16.
Sjáumst!