Fara í efni

Goodyear með hæstu meðaleinkunn í prófun vetrardekkja

Goodyear fékk hæstu meðaleinkunn í stærstu norrænu prófun á vetrardekkjum sem fram fer ár hvert. Það voru Motor og Aftonbladet í Svíþjóð, Tekniikan í Finnlandi og Auto Review í Rússlandi sem stóðu að könnuninni. Goodyear fékk hæstu meðaleinkunn í stærstu norrænu prófun á vetrardekkjum sem fram fer ár hvert. Það voru Motor og Aftonbladet í Svíþjóð, Tekniikan í Finnlandi og Auto Review í Rússlandi sem stóðu að könnuninni. Goodyear fékk hæstu meðaleinkunn í stærstu norrænu prófun á vetrardekkjum sem fram fer ár hvert. Það voru Motor og Aftonbladet í Svíþjóð, Tekniikan í Finnlandi og Auto Review í Rússlandi sem stóðu að könnuninni. Goodyear Ultra Grip fékk hæstu einkunn, 10, í 8 liðum af 14 og hæstu meðaleinkunn, 9,1 af 10. ULTRAGRIP 500 dekkin eru með algjörlega nýja hönnun, unna úr þeim árangri sem fyrri mynsturgerðir Goodyear hafa náð. Hjólbarðinn er búinn kúluflipaskurði, sem eykur stöðugleika hans og grip, sérstaklega við erfiðar aðstæður eins og blautt malbik og á hálum ís. Hjólbarðinn er búinn sérhönnuðum nagla sem er sverari en venjulegur nagli sem gerir það að verkum að hann slitnar síður en er jafnframt léttari og er því umhverfisvænni. Holan fyrir naglann er með nýju lagi sem minnkar áhættuna á því að naglinn detti úr. Notkun efnisins Silika sem eykur grip hjólbarðans við víðara hitasvið hefur verið aukin. Silika minnkar notkun mengandi olíuefna sem áður hafa verið notuð. Semsagt frábær vetrarhjólbarði sem eingöngu er fáanlegur negldur. ULTRAGRIP 6 er ný útgáfa af óneglanlegu vetrardekki, sem er hannað útfrá ULTRSGRIP 5, sem fengið hefur mjög góða dóma undanfarin ár. Hér er komin ný útgáfa af vetrarhjólbarða, sem hannaður hefur verið eftir prófanir á ULTRAGRIP 5 .Þessi hjólbarði er einnig með kúluflipaskurði, sem gefur honum aukið notkunarsvið, þ.e.a.s. betra grip á blautu og þurru malbiki sem og á ís. Í þessum hjólbarða hefur notkun efnisinns Silika verið aukin, og hefur mikil vinna verið lögð í að auka rásfestu og minnka veghljóð Semsagt frábær vetrahjólbarði sem eingöngu er fáanlegur ónegldur.