Karfan er tóm.
HEKLA á leið um landið
Sunnudaginn 10. júní hefst hringferð HEKLU um landið.
Ferðin stendur yfir í fimm daga og á þeim tíma verða 13 staðir heimsóttir. Auk þrautreyndra starfsmanna verður fjölbreytt úrval bíla með í för frá Volkswagen, Skoda, Mitsubishi og Audi. Á staðnum verður mikið um dýrðir Volkswagen e-Golf, Tiguan og T-Roc, Mitsubishi Outlander PHEV og L200, Skoda Kodiaq og Karoq, Audi Q7 og A3.
Ferðin hefst á Norðurlandi og endar á Selfossi. Fyrsti áfangastaður er Hvammstangi og á hverjum stað verður boðið upp á reynsluakstur.
„Þetta verður afar skemmtilegt og við munum fara víða en tveir til þrír staðir verða heimsóttir á dag,“ segir Jóhann Ingi Magnússon, vörumerkjastjóri Volkswagen. „Það verða 10 bílar í hringferðinni og munum við bjóða fólki upp á reynsluakstur á hverjum stað. Við verðum með myndavélina á lofti og fólk getur fylgst með ferðinni á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #heklusumar.
Einnig minnum við á Facebook-síðu HEKLU (https://www.facebook.com/hekla.is) þar sem fréttir af ferðinni munu koma inn reglulega á meðan henni stendur.
Hekla verður á eftirfarandi stöðum:
Sunnudagurinn 10. júní 2018
- Hvammstangi frá kl. 14-15 | Við Félagsheimilið
- Blönduós frá kl. 17-18 | N1
- Skagaströnd frá kl. 20-21 | Olís
Mánudagurinn 11. júní 2018
- Sauðárkrókur frá kl. 10-13 | KS verkstæði
- Siglufjörður frá kl. 16-18 | Olís
- Dalvík frá kl. 20-21 | N1
Þriðjudagurinn 12. júní 2018
- Akureyri kl. 10-13 | Höldur
- Húsavík frá kl. 15-16 | N1
- Neskaupstaður frá kl. 20-21 | Olís
Miðvikudagurinn 13. júní 2018
- Reyðarfjörður frá kl. 11:00-11:30 | Olís
- Reyðarfjörður frá kl. 11:30-12:30 | Álverið
- Egilsstaðir frá kl. 16 - 18 | Bílaverkstæði Austurlands
Fimmtudagurinn 14. júní 2018
- Höfn í Hornafirði frá kl. 8.00-10.00 | Olís
- Selfoss frá kl. 16.00 -18:00 | Bílasala Selfoss