Karfan er tóm.
Íslendingar hugsa grænt og fá frábært verð
VISTVÆNIR VOLKSWAGEN VINSÆLLI OG Á AFAR GÓÐU VERÐI
Hekla hefur fundið fyrir miklum áhuga neytenda á umhverfisvænum bílum og býður nú vistvæna Volkswagen bíla á hagstæðara verði en nokkru sinni fyrr. Mikil vakning er á umhverfisvænum samgöngum á Íslandi og Volkswagen leggur sitt af mörkum. Með stuðningi Volkswagen getur Hekla nú boðið frábær kjör á vistvænum bílum til viðskiptavina sinna.
Volkswagen býður þrjár tegundir vistvænna bíla
- Í fyrsta lagi tengiltvinnbíla sem keyra eingöngu á rafmagni áður en bensínmótor tekur við. Í þeim flokki býður Volkswagen upp á Golf GTE, Passat GTE og Passant Variant GTE.
- Í öðru lagi metanbíla en þar má finna EcoUp, Polo TGI og Golf TGI.
- Í þriðja lagi rafmagnsbíla, en þar býður Volkswagen upp á e-Up og e-Golf.
Stjórnvöld hafa ákveðið að halda áfram ívilnun til að stuðla að sölu á vistvænum bílum næstu þrjú árin og vistvænir Volkswagen bílar sem ganga fyrir endurnýtanlegri íslenskri orku (metan og rafmagn) falla svo sannarlega í þann flokk.
Afsláttur Volkswagen og Heklu er misjafn eftir tegundum en er umtalsverður, t.d. 15% á Passat GTE. Allar nánari upplýsingar fást hjá Heklu, sölumönnum Heklu, heimasíðu Heklu (www.volkswagen.is og www.hekla.is) og síðast en ekki síst er hægt að kynna sér tilboðsverðin milliliðalaust og í eigin persónu á bílasýningunni í Heklu á laugardaginn. Þar verður meðal annars úrval vistvænna Volkswagen bíla sýndir í Volkswagen salnum.
Núna er tíminn til að spá í vinsælan vistænan Volkswagen á viðráðanlegu verði!