Karfan er tóm.
Líf og fjör við Laugaveginn
Margmenni mætti í húsakynni Heklu við Laugaveg síðustu helgi þegar Volkswagen Passat var frumsýndur. Hans hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og viðtökurnar eru vægast sagt góðar.
Um allan heim hefur nýjum Volkswagen Passat verið fagnað og er bíllinn margverðlaunaður. Volkswagen Passat hefur til dæmis hlotið hin virðugu hönnunarverðlaun Red Dot, öryggisverðlaun frá WhatCar? og nú síðast, kosinn Bíll ársins í Evrópu 2015. Þar hlaut hann yfirburðarsigur með 340 stig en bíllinn í öðru sæti hlaut 248 stig.
VW er sérlega þéttur og vel smíðaður bíll enda er nýja kynslóðin sú áttunda í röðinni en VW Passat hefur verið framleiddur óslitið síðan 1973 í alls 22 milljónum eintaka. Passat selst í 1,1 milljón eintaka árlega, sem eru tveir bílar á mínútu eða 3.000 bílar á dag, segir Njáll Gunnlaugsson bílablaðamaður á Morgunblaðinu.
Hönnun áttundu kynslóðar Volkswagen Passat endurspeglar 40 ára tryggð við fágun og tímalausa hönnun. Hönnun á nýja Passatinum hefur sportlegra yfirbragð sem sækir fyrirmynd sína til hins þekkta Volkswagen CC útlits.
Áhersla er lögð á kraftmeiri og eyðsluminni bíla sem meðal annars fæst með nýrri vélahönnun og léttari bíl sem eykur sparneytni um allt að 20%. Nýr Passat er rúmbetri en fyrirrennari hans fyrir ökumann, farþega og farangur, hleðslurými í nýja Passatinum hefur aukist um allt að 47 lítra. Í bílnum er lögð mikil áhersla á að bjóða uppá bestu tækni- og öryggislausnir, þar á meðal má nefna nýjungar á borð við kerruaðstoð, 360 gráðu myndavél og stafrænt mælaborð.
Nýr Passat er fáanlegur með 150 hestafla bensínvél og dísilvélum frá 120 til 240 hestöfl sem jafnframt eru í boði með fjórhjóladrifi. Verðið er frá aðeins 3.990.000 krónum.