Karfan er tóm.
Metanbílar - fróðleikskorn
Metan ökutækjaeldsneyti nýtur síaukinna vinsælda um allan heim og er notað á allar gerðir ökutækja. Metan CH4 er lofttegund sem m.a. myndast á urðunarstöðum sorps við niðurbrot á lífrænum úrgangi. Hérlendis er metangasi safnað saman á urðunarstað höfuðborgarsvæðisins á Álfsnesi.
Jafnmikill kraftur
Metanknúnir bílar eru jafn kraftmikilir og bensín- eða dísilbílar. Nýr Volkswagen Passat EcoFuel er td. með TSI vél sem skilar 150 hestöflum.
Meira öryggi
Metantankar þykja öruggari en bensíntankar þar sem þeir eru gerðir úr sterkara efni. Allur annar öryggisbúnaður er eins í metan bílum og bensín- dísilbílum og því enginn munur þar á! Af metani stafar minni eldhætta en af bensíni.
Hljóðlátari vél
Annað mikilvægt atriði er að vélar sem brenna metani eru hljóðlátari og mýkri en hefðbundnar bílvélar
Sparnaður
Þegar íslenkst metan kom fyrst á markað hérlendis árið 2000 var það um 30% ódýrara en bensín. Munurinn hefur síðan aukist og í dag er metan um 55% ódýrari orkukostur en bensín.
Metan - margskonar ávinningur
Metanbifreiðar fá frítt í bílastæði í Reykjavík eða allt að 90 mínútum
Metanknúnar bifreiðar eru undanþegnar vörugjöldum
Áfyllingartími á metani er nánast sá sami og á hefðbundnum bensínbíl
Íslenskt metan er einstaklega hreint - nær 98% hreinleika
Íslenskt metan er umhverfisvænt eldsneyti unnið úr lífrænum úrgangi
Með metani veljum við íslenska vöru, íslenskt hugvit, spörum gjaldeyri og styðjum við atvinnusköpun á Íslandi
HEKLA hefur 10 ára reynslu af þjónustu við metanbíla og yfir 80% hlutdeild á metanmarkaðninum