Karfan er tóm.
Nýlegir Pajero á rekstrarleigu til fyrirtækja
HEKLA býður nú fyrirtækjum nýlegar Mitsubishi Pajero bifreiðar í rekstrarleigu. Í rekstrarleigu fá fyrirtæki nýlegar bifreiðar til umráða í 1 ár gegn föstu mánaðargjaldi. Leigutaki losnar við alla fjárbindingu og endursöluáhættu. Greitt er fast mánaðarlegt leigugjald og bifreiðinni einfaldlega skilað í lok leigutímans.
Dæmi:
Pajero 3.2 Instyle
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 38.000 km, sjálfskiptur
Bindandi samningur í 12 mánuði. Leigusali Létt ehf.
Mánaðarlegt leigugjald er 136.041 kr. m/vsk
Hvað er innifalið í leiguverði:
- Mánaðargjald felur í sér afnot af bílnum.
- 20.000 km akstur á ári. Hver umfram kílómetri kostar kr. 18. kr + VSK.
- Innifalið í leiguverði eru þjónustuskoðanir og smurþjónusta skv. þjónustubók.
- Bifreið er afhent á nýjum heilsársdekkjum.
Hvað er á kostnað leigutaka:
- Tryggingar, ábyrgð og kaskó.
- Bifreiðagjöld
- Annað viðhald og viðgerðir vegna slitflata, t.d. bremsur, dekk, rúðuþurkur eldsneyti og aðrar rekstarvörur.
- Allar sektir sem rekja má til notkunar bifreiðarinnar.
Annað:
- Allir leigðir bílar eru útbúnir ökurita sem Létt ehf kemur fyrir. Viðskiptavinir geta nýtt sér hann til að hafa eftirlit með notkun á bílnum. Fyrir fast mánaðargjald er hægt að fylgjast með bílnum í rauntíma á korti, eknum vegalengdum, viðkomustöðum, aksturlagi og hraða. Einnig er hægt að fá staðlaðar skýrslur sem sýna notkun og nýtingu bílsins.
Mitsubishi Pajero er knúinn 3,2 l dísilvél sem skilar 200 hestöflum. Meðal búnaðar bifreiðanna eru leðurinnrétting, rafdrifin framsæti, aukasæti (7 manna), bakkmyndavél, xenon ljós, ný heilsársdekk o.fl. (miðað við Instyle útfærslu).