Karfan er tóm.
Sölumet hjá Volkswagen Golf aldrei fleiri selst á einu ári!
Yfir 700 Volkswagen Golf hafa verið seldir hjá bílaumboðinu Heklu á árinu 2016 og hafa þeir aldrei verið fleiri frá upphafi. Sölumetið var slegið nú í september og því ljóst að árið 2016 verður það langbesta frá upphafi hvað varðar sölu á Golf. Til að kóróna enn frekar árangur Heklu flýgur Skoda Octavia einnig út, en yfir 600 bílar af þeirri tegund hafa verið seldir á fyrstu níu mánuðum ársins.
Fyrir utan þessi tvö sölumet í september er óhætt að segja að september hafi verið góður mánuður hjá Heklu því markaðshlutdeild fyrirtækisins í sölu til einstaklinga og fyrirtækja var 21,65% og þar með hæst allra bílaumboða á Íslandi.
Hekla heldur svo enn miklu forskoti þegar kemur að vistvænum bílum en í lok september var Hekla með 69,3% markaðshlutdeild. Volkswagen hefur þar yfirburðastöðu með 330 selda bíla en Skoda er í öðru sæti með 114 selda. Staðan er einnig feykigóð hjá Audi sem hefur selt hátt í níutíu e-tron tengiltvinnbíla það sem af er ári og Mitsubishi sem er með hátt í 80 selda Outlander PHEV. Hér má sjá töflu yfir sölu á vistvænum bílum á íslandi.