Karfan er tóm.
Stefnumarkandi fundur bílaframleiðenda og orkufyrirtækja í Reykjavík 18. september
Stærstu bílaframleiðendur heims, helstu orkufyrirtæki Norðurlanda og leiðandi alþjóðleg fyrirtæki,
stofnanir og einstaklingar í rafvæðingu samgangna koma saman í Reykjavík átjánda og nítjánda
september næstkomandi til að ræða komandi byltingu í rafmagnssamgöngum á næstu fimm árum.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er verndari ráðstefnunnar Driving Sustainability, alþjóðlegs
vettvangs fyrir orkulausnir í samgöngum og mun opna hana klukkan 09:05 að morgni fimmtudagsins
18 september.
Hátt settir stjórnendur bílaframleiðendanna Toyota, Ford, og Mitsubishi munu á ráðstefnunni veita
innsýn í tæknilausnir sem miða að sjálfbærum samgöngum og munu standa neytendum til boða frá
næsta og þarnæsta ári. Stærstu orkufyrirtæki Norðurlanda, Vattenfall í Svíþjóð og Dong Energy í
Danmörku, vinna nú hörðum höndum að innleiðingu rafmagns í samgöngum, og munu þau skýra
ráðstefnugestum frá áætlunum sínum. Hækkandi olíuverð, hröð þróun í rafhlöðum og hátækni leiðir
þessa byltingu.
Volvo og Saab eru í samstarfi við Vattenfall um innleiðingu tengil-tvinnbíla í Svíþjóð, en þeim bílum
má stinga í samband og aka tugi kílómetra á rafmagni áður en hefðbundin bílvél tekur við. Renault-
Nissan samsteypan er hins vegar í samstarfi við Dong Energy, stærsta orkufyrirtæki Danmerkur um
innleiðingu rafmagnsbíla og rafhlöðuskiptistöðva þar í landi ásamt bandaríska fyrirtækinu Better
Place. Þá munu yfirmenn Mitsubishi Heavy Industries í Japan fjalla um hlutverk bifreiða í sjálfbærum
orkuinnviðum og Mitsubishi Motors kynna rafmagnsbílinn MiEV en fjöldaframleiðsla á honum hefst
á næsta ári.
Hinn heimsþekkti svissneski flugkappi og geðlæknir Dr. Bertrand Piccard mun deila framtíðarsýn
sinni á hvernig fersk hugsun og nýjar hátæknilausnir geta rutt brautina fyrir sjálfbærar samgöngur. Dr.
Piccard er mikill ævintýramaður, var fyrstur manna til að fljúga í kringum hnöttinn í loftbelg fyrir
nokkrum árum og sigraði þá frumkvöðulinn Richard Branson sem hrapaði á sínum loftbelg í Sahara
eyðimörkinni. Piccard vinnur nú að Solar Impulse verkefninu sem gengur út á að fljúga í kringum
jörðina á sólarorkuknúinni flugvél árið 2011.
Solar Impulse verkefnið byggir á endurnýjanlegri orku, ofurléttum efnum, nýjustu gerð líþíum
rafhlaðna og gríðarlega sparneytnum rafmagnsmótorum. Talið er að samskonar tækni muni umbylta
bílaframleiðslu heimsins á næstu árum.
“Ef marka má stærstu bílaframleiðendur heims mun framboð á venjulegum fjölskyldubílum sem geta
ekið 150-200 kílómetra á einni rafhleðslu aukast hraðar en flesta órar fyrir á næstu fjórum árum. Þessi
þróun felur í sér gríðarstórt tækifæri fyrir Ísland til að nálgast 100% sjálfbærni í orkumálum, bæta þar
með viðskiptajöfnuðinn, og lækka rekstrarkostnað bifreiða fyrir almenning að minnsta kosti þrefalt.”
segir Teitur Þorkelsson, framkvæmdastjóri Framtíðarorku ehf., skipuleggjanda ráðstefnunnar, sem
vinnur að innleiðingu vistvænna samgangna á Íslandi í samstarfi við einkafyrirtæki, sveitarfélög og
opinbera aðila.
Margskonar rafmagnsfarartæki verða til sýnis og reynsluaksturs á ráðstefnunni. Þar má nefna
rafmagnsbíla, -mótorhjól, -vespur, -reiðhjól og ýmis önnur óhefðbundin rafmagnsfarartæki.
Af öðrum ræðumönnum á ráðstefnunni má nefna Bill Dubé, framleiðanda Killacycle, kraftmesta
rafmagnsmótorhjóls heims sem fer úr 0-100 kílómetra hraða á innan við einni sekúndu, Össur
Skarphéðinsson, Iðnaðarráðherra, og Þórunni Sveinbjarnardóttur Umhverfisráðherra. Þá mun Geir
H. Haarde, Forsætisráðherra hleypa vistakstursátaki ríkisstjórnarinnar af stokkunum ásamt fulltrúum
Landverndar, Toyota, VÍS og Orkuseturs og keppa við þá í vistakstri að viðstöddu fjölmenni.
Þátttakendur ráðstefnunnar koma frá 11 löndum heims auk Íslands, þar á meðal Sviss, Japan,
Bandaríkjunum, Svíþjóð, Danmörku, Tékklandi og Kína. Þá hafa alþjóðlegir fjölmiðlar sýnt efni hennar
mikla athygli og meðal annars munu Sky News og bandarískir kvikmyndargerðamenn vera á staðnum.
Framtíðarorka ehf, skipuleggjandi ráðstefnunnar, er þekkingarfyrirtæki sem einbeitir sér að ráðgjöf til
stjórnenda orku-, samgöngu- og fjármálafyrirtækja. Einnig veitir fyrirtækið ráðgjöf til bæjarfélaga og
opinberra aðila og tekur að sér innleiðingu verkefna í vistvænum samgöngum. Framtíðarorka
stofnaði til Driving Sustainability ráðstefnunnar á síðasta ári og kom því þá m.a. til leiðar að Toyota
Prius tvinnbíl var breytt í fyrsta tengil-tvinnbílinn á Íslandi. Niðurstaða Driving ´07 var skýr: Hlutur
rafmagns sem orkugjafa í samgöngum mun aukast hratt á næstu árum og tengil-tvinnbílar koma á
almennan markað á árunum 2010-2012. Markmið Framtíðarorku ehf. er að Ísland verði fyrsta land í
veröldinni sem er 100% sjálfbært í orkumálum.
Reykjavíkurborg, Landsbanki og Icelandair eru gestgjafar Driving Sustainability ´08. Auk þeirra eru
nokkur framsýnustu fyrirtæki Íslands úr bíla- og orkugeiranum bakhjarlar ráðstefnunnar; Toyota,
Orkuveita Reykjavíkur, Mitsubishi, Orkusjóður og N1, sem nýverið kynnti áætlanir sínar um
uppbyggingu fjölorkustöðva um allt land. Ráðstefnan hefur frá upphafi verið studd af
Iðnaðarráðuneyti, Samgönguráðuneyti og Umhverfisráðuneyti auk Sænska Sendiráðsins á Íslandi.
Þeim sem hafa áhuga á þessum viðburði er bent á: www.driving.is
Nánari upplýsingar:
Teitur Þorkelsson, framkvæmdastjóri Framtíðarorku, teitur(hjá)driving.is. GSM: 897 1469
Vinsamlegast athugið:
Ræðumenn koma og fara á mismunandi tímum. Ef óskað er eftir viðtali við tiltekna ræðumenn áður
en ráðstefnan hefst, vinsamlegast hafið samband við: Berglind Johansen: berglind(hjá)driving.is. GSM: 861 2070