Fara í efni

Volkswagen fær grænt ljós á kaup á meirihluta atkvæðisbærra hluta í Scania

Samkeppnisyfirvöld hafa gefið Volkswagen samstæðunni grænt ljós á að kaupa meirihluta atkvæðisbærra hluta í sænska vöru- og rútubílaframleiðandanum Scania AB. Búist var við að gengið yrði frá viðskiptunum í þessari viku. Til þess að þessi viðskipti gætu orðið að veruleika þurfti heimild frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins auk þess sem málið fór fyrir samkeppnisyfirvöld í mörgum löndum víðs vegar um heim. Samkeppnisyfirvöld hafa gefið Volkswagen samstæðunni grænt ljós á að kaupa meirihluta atkvæðisbærra hluta í sænska vöru- og rútubílaframleiðandanum Scania AB. Búist var við að gengið yrði frá viðskiptunum í þessari viku. Til þess að þessi viðskipti gætu orðið að veruleika þurfti heimild frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins auk þess sem málið fór fyrir samkeppnisyfirvöld í mörgum löndum víðs vegar um heim. Samkeppnisyfirvöld hafa gefið Volkswagen samstæðunni grænt ljós á að kaupa meirihluta atkvæðisbærra hluta í sænska vöru- og rútubílaframleiðandanum Scania AB. Búist var við að gengið yrði frá viðskiptunum í þessari viku. Til þess að þessi viðskipti gætu orðið að veruleika þurfti heimild frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins auk þess sem málið fór fyrir samkeppnisyfirvöld í mörgum löndum víðs vegar um heim. Volkswagen náði samkomulagi við Investor AB og Wallenberg stofnunina í mars á þessu ári um kaup á öllum hlutum þeirra í Scania. Volkswagen eykur með kaupunum atkvæðisbæran hlut sinn í Scania úr 37,98% í 68,6%. Með kaupunum eykst hlutafjáreign VW í Scania úr 20,89% í 37,73%. Uppgefið kaupverð er um það bil 2,8 milljarðar evra. Scania gengur að fullu inn í Volkswagen samstæðuna á síðari árshelmingi 2008.
"Við erum himinlifandi yfir því að Scania verður nú níunda merkið innan vébanda stærsta bifreiðaframleiðanda Evrópu,” segir Martin Winterkorn, stjórnarformaður Volkswagen. Hann segir að nú sé komin á skýr skipan á hluthafahóp Scania. "Eins og önnur merki innan samstæðunnar verður Scania áfram með sjálfstæðar höfuðstöðvar og engin breyting verður á ásýnd fyrirtækisins eða starfsemi,” segir Winterkorn.