Fara í efni

Volkswagen Passat valinn bíll ársins

Marinó Björnsson tók á móti verðlaununum
Marinó Björnsson tók á móti verðlaununum
Bandalag íslenskra bílablaðamanna tilkynnti föstudaginn 2. sept 2011 um val á bíl ársins 2012. Að þessu sinni var það Volkswagen Passat í metanútfærslu sem hlaut verðlaunin „Bíll ársins 2012“. Audi A1 vann í flokki smærri fólksbíla.Bandalag íslenskra bílablaðamanna tilkynnti föstudaginn 2. sept 2011 um val á bíl ársins 2012. Að þessu sinni var það Volkswagen Passat í metanútfærslu sem hlaut verðlaunin „Bíll ársins 2012“. Audi A1 vann í flokki smærri fólksbíla.

Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB, tilkynnti um val á bíl ársins 2012 í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands föstudaginn 2. sept 2011. Að þessu sinni var það Volkswagen Passat í metanútfærslu sem hlaut verðlaunin  „Bíll ársins 2012“.  Volkswagen Passat fær því verðlaunagripinn Stálstýrið 2012. Audi A1 var valinn Bíll ársins í flokki smærri fólksbíla.

Bílar sem gjaldgengir voru í keppnina að þessu sinni voru bílar sem höfðu komið á markað hér á landi frá ágúst 2010. Dómnefnd tók tillit til aksturseiginleika, afkastagetu, eldsneytisnotkunar, visthæfi, öryggisbúnaðar, útlits og hönnunar bílanna og endursöluvirðis svo nokkuð sé nefnt.

Í Volkswagen Passat er hugsað um hvert smáatriði þegar kemur að hönnun, þægindum og öryggi. Passat er ríkulega búinn staðalbúnaði og er einstaklega rúmgóður og þægilegur í akstri. Einnig er í boði fjölbreytt úrval aukahluta og tækni sem einkennt hefur Volkswagen sem nýjungagjarnan framleiðanda. Fimm stjörnu eiknunn VW Passat í árekrarprófun Euro Ncap staðfestir þá stefnu Volkswagen að öryggið sé ávallt í forgangi.

Volkswagen Passat EcoFuel notar metangas sem aðal orkugjafa en einnig er hann með 31 lítra bensíntak. Hámarksdrægni á metangasi er um 450 km og 430 km á bensíninu. Þannig er hægt að aka 880 km að hámarki án þess að fylla á eldsneytið sem er vel ríflega vegalengdin frá Reykjavík til Akureyrar og til baka. Metangas er unnið úr lífrænum úrgangi á Íslandi og nær allt að 98% hreinleika, sem gerir það að einum umhverfisvænasta orkukostinum. Metangas er mun ódýrara eldsneyti heldur en bensín og dísil. Árlegur sparnaður getur numið um 100.000 krónum m.v. 15.000 km akstur á ári. Einnig fá metanbílar frítt í stæði í Reykjavík þannig að ávinningurinn er margvíslegur.

“Volkswagen Passat verðskuldar fyllilega að vera valinn bíll ársins 2012 á Íslandi. Þetta er flottur bíll á frábæru verði og einstaklega sparneytinn.  Metan útfærslan mælist vel fyrir og er umhverfisvæn og nýtir íslenskt eldsneyti sem er góður kostur. Vélin í Passat EcoFuel er sérhönnuð til brennslu á metani, enda er brunahiti vélarinnar hærri við brennslu metans heldur en á bensíni“. Segir Friðbert Friðbertsson forstjóri HEKLU.

Marinó Björnsson sölustjóri Volkswagen er ánægður með árangurinn: „Volkswagen Passat hefur verð einstaklega farsæll síðan hann kom á markað árið 1973. Núna er sjöunda kynslóð Passat komin á markað sem er stórglæsilegur bíll í alla staði. Glæsileg hönnun, einstakir aksturseiginleikar með sparneytni og öryggi í hæsta gæðaflokki. Það kemur mér því ekki á óvart að hann fái þessa viðurkenningu. Volkswagen hefur unnið þessi verðlaun sl. tvö skipti sem þau hafa verið veitt, en Volkswagen Tiguan vann síðast“. Sagði Marinó að lokum.


Úrslit í vali á bíl ársins 2012 voru eftirfarandi:

Í flokki smærri fólksbíla sigraði Audi A1.
Í flokki vistvænna bíla sigraði Volkswagen Passat EcoFuel.
Í flokki stærri fólksbíla sigraði Volvo S60

Bíll ársins 2012: Volkswagen Passat EcoFuel